Verkheiti

Haust herferð Stöð 2

Viðskiptavinur

365 Miðlar

Haltu þér fast!

Verkheiti

Inspired by Iceland

Viðskiptavinur

Samtök ferðaþjónustunnar

Viral - kynningarmyndband fyrir Ísland

Verkheiti

Polar Beer

Viðskiptavinur

Ölgerðin

Villtur!

Verkheiti

Herramenn

Viðskiptavinur

Vodafone

Ný þjónustuherferð Vodafone

Verkheiti

Bjartsýni

Viðskiptavinur

VR

Bjartsýni

Verkheiti

HM 2010

Viðskiptavinur

365 Miðlar

Við tökum HM alla leið.

Verkheiti

Ísland heiðursgestur á Bókamessunni í Frankfurt 2011

Viðskiptavinur

Mennta og menningarmálaráðuneytið

Sögueyjan Ísland Fyrsti áfangi - plaköt

Verkheiti

Mörkun fyrir Alvogen um allan heim.

Viðskiptavinur

Alvogen

Alvogen endurmörkun

Verkheiti

POLAR BEER - Eldgos

Viðskiptavinur

Ölgerðin

Fyrir þá sem þola ekki gos.

Verkheiti

Lúðurinn - Íslensku auglýsingaverðlaunin

Viðskiptavinur

Fiton

Lúðrasveitin stækkar!

Verkheiti

Helgarsteikur umbúðir

Viðskiptavinur

Sláturfélag Suðurlands

Eru ekki allir til í djúsí steik?

Verkheiti

Hátíðarsíður

Viðskiptavinur

Vátryggingafélag Íslands

Hátíð í bæ

Verkheiti

Gizzur hinn mikli

Viðskiptavinur

Lífís

Það veit enginn hvað gerist í framtíðinni

Verkheiti

Polar beer Fréttir af andláti mínu eru stórlega ýktar

Viðskiptavinur

Ölgerðin

Fréttir af andláti mínu eru stórlega ýktar

Verkheiti
Haust herferð Stöð 2
Viðskiptavinur
Haltu þér fast!
Vetrardagskrá Stöðvar 2 var kynnt með rússíbanareið dæmigerðrar íslenskrar fjölskyldu gegnum ævintýraheim íslenskra sem erlendra úrvalsþátta, þar sem helstu stjörnurnar brugðu á leik. Rétt er að taka fram að enginn kynþokkafullur matreiðslumaður skaðaðist við gerð þessara auglýsinga.
< >
Verkheiti
Inspired by Iceland
Viral - kynningarmyndband fyrir Ísland
Fíton sá um framleiðslu á myndbandi sem ætlað var að styrkja ímynd landsins. Þjóðin var hvött til að senda myndbandið á vini sína í útlöndum með átakinu 'Þjóðin býður heim' og tókst það framar vonum. Myndbandið var sent áfram um allan heim og eftir tæpa viku höfðu yfir milljón manns skoðað það á heimasíðunni inspiredbyiceland.com. Emilíana Torrini flytur lagið, Jungle Drum. Pegasus framleiddi. Reynir Lyngdal leikstýrði.
< >
Verkheiti
Polar Beer
Viðskiptavinur
Villtur!
Ný herferð fyrir Polar Beer frá Ölgerðinni. Unnin í samstarfi við Miðstræti. Polar er óumdeildur konungur norðurhvels. Hann lendir í ýmsum ævintýrum á ísnum – en heldur alltaf kúlinu.
< >
Verkheiti
Herramenn
Viðskiptavinur
Ný þjónustuherferð Vodafone
Pétur Jóhann bregður sér í hlutverk nokkurra Herramanna og Frökena sem öll eiga það sameiginlegt að einfalda líf sitt með því að vera hjá Vodafone. Pegasus framleiddi. Reynir Lyngdal leikstýrði.
< >
Verkheiti
Bjartsýni
Viðskiptavinur
Bjartsýni
VR hleypti af stokkunum nýrri herferð þar sem jákvæðni leikur aðalhlutverk. Á erfiðum tímum er mikilvægara en nokkru sinni fyrr að efla jákvæðni í samfélaginu. Fíton vann sjónvarpsauglýsinguna þar sem fólk er sýnt við ýmsar aðstæður og minnt er á að jákvætt viðmót hefur víðtæk áhrif, ekki bara á okkur sjálf, heldur alla í kringum okkur. Verkefnið var unnið í góðu samstarfi við Republik og Lárus Jónsson leikstýrði. Uppveðraðir Miðstrætismenn unnu tæknibrellur og Vigfús Birgisson ljósmyndaði.
< >
Verkheiti
HM 2010
Viðskiptavinur
Við tökum HM alla leið.
Hressandi auglýsing þar sem að við sjáum þuli æfa sig fyrir HM.
600337/media/movies/HM_TRAILER.flv
< >
Verkheiti
Ísland heiðursgestur á Bókamessunni í Frankfurt 2011
Sögueyjan Ísland Fyrsti áfangi - plaköt
Á næsta ári verður Ísland heiðursgestur á Bókamessunni í Frankfurt. Þessi heiðursess gefur íslenskum bókaútgefendum fágætt tækifæri til að auka útbreiðslu íslenskra bókmennta um allan heim. Undirbúningur þessa metnaðarfulla verkefnis er í fullum gangi, en fyrsta áfanginn eru veggspjöld þar sem bókmenntir og náttúra sameinast í áhrifaríku myndmáli.
< >
Verkheiti
Mörkun fyrir Alvogen um allan heim.
Viðskiptavinur
Alvogen endurmörkun
Fíton vinnur nú að mörkun lyfjafyrirtækisins Alvogen. Hún er liður í uppbyggingu félagsins á alþjóðlegum lyfjamarkaði en þetta er eitt stærsta mörkunarverkefni sem íslenskri auglýsingastofu hefur verið falið en félagið hyggur á markaðssókn víða um heim. Fíton hannaði merkið og og allt útlit Alvogen auk auglýsinga, lyfjapakkninga og ýmiss konar kynningarefns auk þess að veita markaðsráðgjöf. Fíton starfrækir einnig það sem kalla má rafræna vörumerkjamiðstöð sem styður við markaðsstarf Alvogen um allan heim. Þá má geta þess að systurfélag Fíton, Atómstöðin, hefur umsjón með nýjum vefsvæðum Alvogen og dótturfélaga þess víða um heim. Alvogen er alþjóðlegt lyfjafyrirtæki með höfuðstöðvar í Bandaríkjunum og starfsemi í sjö löndum en markmið stjórnenda er að koma félaginu í hóp tíu stærstu samheitalyfjafyrirtækja heims á næstu fimm árum með öflugt vörumerki að vopni.
< >
Verkheiti
POLAR BEER - Eldgos
Viðskiptavinur
Fyrir þá sem þola ekki gos.
Polar Beer heldur áfram snarpri samfélagsrýni sinni. Hér sýnir hann glögglega hvaða skoðun hann hefur á gos-æði þjóðarinnar.
< >
Verkheiti
Lúðurinn - Íslensku auglýsingaverðlaunin
Viðskiptavinur
Lúðrasveitin stækkar!
Fíton hlaut fimm Lúðra, 22 tilnefningar og var valin besta auglýsingastofa landsins af íslensku markaðsfólki á Lúðrinum, íslensku auglýsingaverðlaununum. Við erum afskaplega stolt af þeim árangri sem við höfum náð á síðustu misserum og þökkum okkar ágætu viðskiptavinum fyrir frábært samstarf við krefjandi aðstæður.
< >
Verkheiti
Helgarsteikur umbúðir
Viðskiptavinur
Eru ekki allir til í djúsí steik?
Fyrir þá sem langar í góða steik en finnst t.d. heilt læri of mikið er kjörið að fá sér SS helgarsteik. Steikunum er pakkað í lofttæmdar umbúðir og þeim fylgir álbakki til að steikja í. Þessi vörulína var áður með prentuðum pappahólkum en útlit umbúða var endurhannað. Nú eru notaðir límmiðar með matreiðsluleiðbeiningum aftan á. Steikurnar eru lagðar í mismunandi kryddlög og umbúðirnar, litir þeirra og matreiðsla eru skírskotun í kryddlöginn og einkenni hans.
< >
Verkheiti
Hátíðarsíður
Viðskiptavinur
Hátíð í bæ
VÍS óskar landsmönnum til hamingju með daginn við hin ýmsu tækifæri með fjörugum heilsíðuauglýsingum. „Heimurinn“ í auglýsingunum er mikið föndur, sviðsmyndin er klippt út, stillt upp í stúdíói og síðan mynduð.
< >
Verkheiti
Gizzur hinn mikli
Viðskiptavinur
Það veit enginn hvað gerist í framtíðinni
Þegar VÍS nálgaðist Fíton með nýtt verkefni fyrir Lífís var hugmyndin í upphafi sú, að gera áhugaverðan markpóst fyrir líf- og sjúkdómatryggingar. Eftir því sem hugmyndavinnan vatt upp á sig varð fljótlega ljóst að hugmyndin byði upp á miklu meira en bara markpóst. Framleiddar voru sjónvarps- og útvarpsauglýsingar með spámanninum Gizzuri hinum mikla sem rýnir í framtíð viðskiptavina sinna – og hefur nær alltaf rangt fyrir sér. Gizzur rekur einnig spádómslínu þar sem hann spáir í síma 560 5202. Stokkur með spádómsspilum var sendur sem markpóstur og framleiddar voru spádómskökur með misvitrum spádómum. Þá gátu gestir vinsælla vefsvæða látið spá fyrir sér á gagnvirkum vefborða. Fjölbreytt og umfangsmikið verkefni, en rauði þráðurinn var alltaf sá sami: Það er alveg sama hvaða brögðum er beitt, þú veist aldrei hvað framtíðin ber í skauti sér. Þess vegna skaltu líf- og sjúkdómatryggja þig hjá Lífís – og spá í mikilvægari hluti í lífinu.
< >
Verkheiti
Polar beer Fréttir af andláti mínu eru stórlega ýktar
Viðskiptavinur
Fréttir af andláti mínu eru stórlega ýktar
Nýjasta útspil Polar beer er lítil herferð fyrir sjónvarp og útvarp, til heiðurs föllnum félaga. Fléttu.
< >